Innheimta:
Sími:        545 2400
E-mail:     veita@veita.is

Lögfræðiþjónusta:
Sími:        533 3377
E-mail:     loginnheimta@veita.is

Árangursrík, persónuleg og hagkvæm innheimtu- og greiðsluþjónusta

Veita eru þjónustufyrirtæki sem býður fjölbreytta innheimtu- og greiðsluþjónustu. Með viðskiptum við okkur geta viðskiptavinir bætt fjárstreymi, dregið úr áhættu og aukið hagræði í rekstri.
Við leggjum mikla áherslu góðan innheimtuárangur, persónulega þjónustu og að nýta möguleika upplýsingatækninnar og rafrænna viðskipta til að auka hagræði og ná betri árangri í innheimtuferlinu.
Milliinnheimtubréfum er fylgt eftir með símtölum og þannig komið á persónulegum samskiptum við greiðendur. Sanngjörn verðskrá ásamt persónulegu viðmóti hefur gert það að verkum að við höfum náð framúrskarandi árangri í innheimtu.
Starf okkar byggir á áratuga reynslu. Starfsfólk er með mikla reynslu af innheimtu- og lögfræðistörfum og margvíslega menntun, s.s. á sviði lögfræði, verkfræði, hugbúnaðargerðar og viðskipta.